Ferðafélag Siglufjarðar

Ferðafélag Siglufjarðar

sol

Velkomin á heimasíðu Ferðafélags Siglufjarðar

Ætlunin er að halda úti lifandi vef
þar sem væntanlegar ferðir á vegum félagsins verða birtar
og upplýsingar um farnar ferðir verða gerðar aðgengilegar

Fréttir

Listaganga 2011

Miðbær Siglufjarðar
Margt var um manninn í árlegri listagöngu Ferðafélags Siglufjarðar í gærkvöldi. Rúmlega fjörutíu manns gengu með Ferðafélaginu þetta árið. Eftir heimsókn til Fríðu þá gengu margir út með fallegan trefil og var það kærkomið í kuldanum. Listakonan Fríða stóð fyrir söfnun til styrktar Ljósinu sem er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og eða blóðsjúkdóma. Styrkjendur fengu að gjöf einn númeraðan bút úr Héðinsfjarðartreflinum. Lesa meira

Hólshyrnuganga - 6. ágúst

Örlygur Kristfinnsson á toppi Hólshyrnu

Gengið er frá Saurbæjarási og upp framan í eggjum Hólshyrnu upp Hólshyrnuröðul og upp á Hólshyrnu. Gengið er suður eftir Hólsfjalli, ofan í Stóruskál og niður í Hólsdal. Mesta hæð 687 m. Ferðinni líkur með grillveislu í skógrækt Siglufjarðar.

Fararstjóri: Örlygur Kristfinnsson. Verð 500 kr.   

Göngutími 4-5 klst. Lagt af stað frá flugvelli klukkan 10:00.


Ganga út á Siglunes um verslunarmannahelgina 2011

Fríður hópur í upphafi göngu
Gangan út á Siglunes heppnaðist sérlega vel. Veðrið var eins og best var á kosið og allir komust á leiðarenda. Gangan tók átta klukkutíma með bátsferðinni til baka.

Gengið var frá Ráeyri norður saurbæjarásinn upp Kálfsdalinn og yfir Kálfsskarð niður í Nesdalinn. Hópurinn gekk út Nesdalinn að austan fyrir Nestánna og út á Siglunesið. Hópurinn fór með bát til baka.

Göngugarpurinn Ragnar Ragnarsson ákvað að ganga eftir eggjum Siglunesmúla aftur til Siglufjarðar!!

Látum myndirnar tala sínu máli. Myndir HÉR


Siglunes - 30. júlí - skráning er hafin í síma 699 5022

Siglunesviti
Vegalengd: 15-16 km. Mesta hæð: 450 m. Göngutími: 6-8 klst. Bátsferð til baka.

Þátttakendur eru hvattir til að vera vel skóaðir og með gott nesti. Fararstjóri: Anna Marie Jónsdóttir. Verð: 2000.  Lagt af stað frá Ráeyri klukkan: 10:00.

Leið: Ráeyri – Staðarhóll – Kálfsdalur – Kálfsskarð – Nesdalur – Siglunes – Nestá.

Haldið er af stað frá flugvellinum á Ráeyri og gengið um rústir síldarverksmiðju Evangers sem eyðilagðist í snjóflóði úr Skollaskál 1919. Þaðan er gengið yfir Staðarhól litlu norðar og sjást þar tóftir samnefnds bæjar. Um Staðarhólsströndina er heppilegt að fylgja fjárgötum í hlíðarrótum. Upp af Selvíkurvita taka við Kambalágar og þar ofar opnast Kálfsdalur með litlu stöðuvatni. Áfram er haldið upp dalinn skáhallt til Kálfsskarðs í suðaustri. Í suðvestri blasir við bakhliðin á tveimur einkennisfjöllum Siglufjarðar, Hestskarðshnjúki og Staðarhólshnjúki en utar og minni er Hinrikshnjúkur. Af skarðinu er greið leið niður í fremstu drög Nesdals. Nú tekur við langur gangur niður að sjó þar sem Reyðará liðast í ótal bugðum og fylgir Hestfjall okkur alla leið á hægri hönd. Í utanverðum Nesdal er þungvæð gróðurþemba. Austan við Reyðará stendur samnefnt býli og þaðan er gengið eftir ruddum akvegi vestur á Siglunes. Nesnúpur gnæfir yfir Siglunesvita og þar litlu norðar á sléttum melum stóðu herbúðir Breta og Bandaríkjamanna í seinni heimstyrjöldinni. Nú tekur sjálft Siglunes við og liggur vegurinn hjá rústum samnefnds höfuðbóls sem stóð þar frá landnámi Þormóðs ramma og fram yfir miðja 20. öld. Ferðalangar eru hvattir til að ljúka göngu sinni frammi á Nestá þar sem tóftir fornra verbúða eru enn sýnilegar. Þar vestur af eru miklar grynningar sem nefnast Hellan og til norðurs eru Svarthöfðasteinar og Slysfarir næst landi að sunnan. Bátsferð til baka.
Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf